Nýlega birtist grein um uppruna tanna rostunga, sem seldar voru sem fílabein í Evrópu á miðldum. Athyglisvert efni, m.a. fyrir lesendur „Svarta víkingsins“
Samband eldstöðvakerfa
Nýlega birtist grein í tímaritinu Nature, en í henni telja höfundar sig leiða sterkar líkur að því að djúpt í iðrum jarðar tengist eldstöðvakerfin í Bárðarbungu og Grímsvötnum.
Tengill á greinina er hér.
Velkomin á vefsetrið
Þetta vefsetur hefur að geyma gamalt efni frá því ég hélt úti vefsíðu Eyjafjarðardeildar Ferðaklúbbsins 4×4, einnig eru hér pistlar og myndefni frá nokkrum stöðum og ferðum. Hér verður líka fjallað um jarðfræðileg efni og hér verður vonandi vettvangur Úrsérgengisins.
Apríl 2016,
Grétar G. Ingvarsson.