{"id":119,"date":"2013-02-04T23:31:26","date_gmt":"2013-02-04T23:31:26","guid":{"rendered":"http:\/\/ey4x4.net\/wp\/?page_id=119"},"modified":"2013-03-31T12:06:56","modified_gmt":"2013-03-31T12:06:56","slug":"2003-2004","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/ey4x4.net\/wp\/?page_id=119","title":{"rendered":"2003-2004"},"content":{"rendered":"<p><strong>Vinnufer\u00f0 30. &#8211; 31. ma\u00ed.<\/strong><br \/>\nVinnufer\u00f0ir \u00e1 vegum sk\u00e1lanefndar og umhverfisnefndar voru farnar 30. &#8211; 31. ma\u00ed.<br \/>\nSk\u00e1lanefnd vann a\u00f0 hreingerningu \u00e1 h\u00fasinu og vi\u00f0ra\u00f0i d\u00fdnur, huga\u00f0i a\u00f0 vatnstanki og h\u00e6\u00f0arm\u00e6ldi vatnsb\u00f3li\u00f0. Vegna rigningar var ekki h\u00e6gt a\u00f0 bera \u00e1 pallana e\u00f0a utan \u00e1 h\u00fasin. Vi\u00f0arol\u00eda og penslar eru hins vegar til rei\u00f0u innfr\u00e1 og geta \u00feeir sem \u00feanga\u00f0 koma gripi\u00f0 \u00ed a\u00f0 bera \u00e1.<br \/>\nN\u00e1nari uppl\u00fdsingar veita Elli 894 4722, 854 4722 og \u00d3skar 466 1575.<br \/>\nUmhverfisnefnd laga\u00f0i gir\u00f0inguna, setti ni\u00f0ur trj\u00e1pl\u00f6ntur, bar \u00e1 og s\u00e1\u00f0i \u00ed sv\u00e6\u00f0i utan gir\u00f0ingar me\u00f0 s\u00e1ningarv\u00e9l sem Landgr\u00e6\u00f0slan l\u00e1na\u00f0i. Ekki var sett rafmagn \u00e1 gir\u00f0inguna \u00ed \u00feetta skipti.<\/p>\n<p><strong>Vinnufer\u00f0 helgina 28. &#8211; 29. j\u00fan\u00ed<\/strong><br \/>\n28. j\u00fan\u00ed ver\u00f0ur farin vinnufer\u00f0 \u00e1 vegum umhverfis- og sk\u00e1lanefnda.<br \/>\nUmhverfisnefnd \u00e6tlar a\u00f0 l\u00edta eftir gir\u00f0ingu, kindur v\u00e6ntanlega m\u00e6ttar \u00ed n\u00e1grenni\u00f0 og setja ni\u00f0ur nokkrar trj\u00e1pl\u00f6ntur til vi\u00f0b\u00f3tar.<br \/>\nSk\u00e1lanefnd \u00e6tlar a\u00f0 vinna \u00ed vatnsm\u00e1lunum og \u00e6tlunin er a\u00f0 eftir \u00feessa vinnufer\u00f0 ver\u00f0i vatni\u00f0 komi\u00f0 inn \u00ed h\u00fas.<br \/>\nEinnig ver\u00f0ur bori\u00f0 \u00e1 h\u00fas og palla.<br \/>\nLagt ver\u00f0ur af sta\u00f0 fr\u00e1 Leiru kl. 9. Sk\u00e1lanefnd \u00e6tlar styttstu lei\u00f0 en umhverfisnefnd fer upp \u00far Eyjafir\u00f0i. Komi\u00f0 ver\u00f0ur vi\u00f0 \u00ed Ytra-Flj\u00f3tsgili og s\u00f3ttar \u00feanga\u00f0 nokkrar pl\u00f6ntur.<br \/>\nN\u00fa er t\u00e6kif\u00e6ri fyrir alla sem vilja til a\u00f0 taka til hendinni og fara \u00ed skemmtilega fer\u00f0.<\/p>\n<p><strong>Vatn inn \u00ed h\u00fas<\/strong><br \/>\nS\u00ed\u00f0ustu helgi, 28. &#8211; 29. j\u00fan\u00ed, var farin vinnufer\u00f0 og n\u00fa er vatni\u00f0 komi\u00f0 inn \u00ed h\u00fas. Til a\u00f0 f\u00e1 vatni\u00f0 til a\u00f0 renna \u00fearf a\u00f0 kveikja \u00e1 d\u00e6lu me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 smella lj\u00f3sarofa sem merktur er vatn. Rofinn er \u00e1 veggnum h\u00e6gra megin vi\u00f0 eldav\u00e9lina.<br \/>\nEinnig var bori\u00f0 \u00e1 h\u00fasi\u00f0 og pallana, aukalag af m\u00fdflugum fylgdi me\u00f0, og lj\u00f3sav\u00e9lin var l\u00f6gu\u00f0.<br \/>\nUmhverfisnefnd s\u00f3tti pl\u00f6ntur inn \u00ed Ytra-Flj\u00f3tsgil \u00ed sumar og gr\u00f3\u00f0ursetti \u00e1 Torfunni. \u00dev\u00ed mi\u00f0ur hafa komist kindur inn \u00ed gir\u00f0inguna og \u00e9ti\u00f0 talsvert af pl\u00f6ntum sem b\u00fai\u00f0 var a\u00f0 setja ni\u00f0ur.<br \/>\n\u00deeir sem koma vi\u00f0 \u00ed sk\u00e1lanum eru be\u00f0nir um a\u00f0 g\u00e6ta \u00feess vel a\u00f0 loka hli\u00f0inu.<\/p>\n<p><strong>\u00c1minning fr\u00e1 Sm\u00e1ra<\/strong><br \/>\nEfni:<br \/>\nEldsneytisfr\u00e1gangur \u00e1 h\u00e1lendinu.<br \/>\nEins og flestir vita koma jeppa og sle\u00f0amenn eldsneyti s\u00ednu fyrir \u00e1 v\u00f6ldum st\u00f6\u00f0um \u00e1 h\u00e1lendinu. Sj\u00e1lfsagt er \u00feetta allt banna\u00f0 en vi\u00f0 gerum \u00feetta samt okkur til \u00fe\u00e6ginda.<br \/>\n\u00deessum birg\u00f0arst\u00f6\u00f0vum fj\u00f6lgar st\u00f6\u00f0ugt amk. h\u00e9r \u00e1 nor\u00f0anver\u00f0u h\u00e1lendinu. \u00cd G\u00e6sav\u00f6tnum er kominn t\u00edmi til a\u00f0 gera eitthva\u00f0 r\u00f3tt\u00e6kt \u00ed m\u00e1linu. \u00dear m\u00e1 telja \u00ed stuttum g\u00f6ngut\u00far 19 &#8222;birg\u00f0ast\u00f6\u00f0var&#8220;. Sumar eru vel faldar og \u00fearf mikla \u00fatsj\u00f3narsemi til a\u00f0 finna \u00fe\u00e6r. \u00dea\u00f0 merkir a\u00f0 eigendurnir hafa unni\u00f0 heimavinnuna s\u00edna og gengi\u00f0 \u00feannig fr\u00e1 a\u00f0 ekki er til ama.<br \/>\n\u00dev\u00ed mi\u00f0ur eru enn nokkrir a\u00f0ilar sem eiga \u00fearna fiskik\u00f6r e\u00f0a \u00f6nnur \u00edlat sem blasa vi\u00f0 fer\u00f0af\u00f3lki \u00ed sv\u00f6rtu hrauninu. \u00deegar fari\u00f0 er a\u00f0 stafla fiskik\u00f6rum \u00ed tv\u00e6r h\u00e6\u00f0ir er au\u00f0velt fyrir sj\u00f3ndapra a\u00f0 sj\u00e1 \u00feau \u00ed margra m\u00edlna fjarl\u00e6g\u00f0 \u00fear sem bakgrunnurinn er svartur. Hva\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00feegar 4 stk 200 ltr tunnur eru l\u00e1tnar standa \u00e1 fj\u00f6lf\u00f6rnu, g\u00f6ngut\u00fara sv\u00e6\u00f0i sta\u00f0arins.<br \/>\n\u00cd G\u00e6sav\u00f6tnum eru allar gistin\u00e6tur b\u00f3ka\u00f0ar fram \u00ed mi\u00f0jan september, og umfer\u00f0 &#8222;g\u00f6mlu G\u00e6savatnalei\u00f0ar&#8220; er mj\u00f6g mikil. \u00dea\u00f0 eru \u00fev\u00ed nokkur hundru\u00f0 ef ekki \u00fe\u00fasund manns sem fara um sv\u00e6\u00f0i\u00f0 og sko\u00f0a &#8222;birg\u00f0a&#8220; d\u00fdr\u00f0ina.<br \/>\n\u00dea\u00f0 eru \u00fev\u00ed eindregin tilm\u00e6li G\u00e6savatnaf\u00e9lagsins a\u00f0 menn taki \u00feetta til s\u00edn sem eiga, og gangi betur um.<br \/>\nFrelsi\u00f0 sem vi\u00f0 h\u00f6fum er vandme\u00f0 fari\u00f0, \u00fea\u00f0 getur veri\u00f0 d\u00fdrt a\u00f0 misnota \u00fea\u00f0<br \/>\nFjalla &#8211; kve\u00f0jur<br \/>\nFr\u00e1 G\u00e6savatnaf\u00e9laginu<br \/>\nSm\u00e1ri Sigur\u00f0sson<\/p>\n<p><strong>Til \u00fe\u00e1tttakenda \u00ed septemberfer\u00f0<\/strong><br \/>\nUndirb\u00faningsfundur ver\u00f0ur haldinn \u00ed h\u00fasn\u00e6\u00f0i S\u00falna fimmtudaginn 11. september kl. 20. Fari\u00f0 ver\u00f0ur n\u00e1nar yfir fer\u00f0a\u00e1\u00e6tlun og skiptingu \u00ed h\u00f3pa.<br \/>\nB\u00edlar sem \u00e6tla me\u00f0 \u00ed fer\u00f0ina \u00feurfa a\u00f0 uppfylla eftirfarandi skilyr\u00f0i hvar\u00f0 var\u00f0ar dekkjast\u00e6r\u00f0 (Mi\u00f0a\u00f0 er vi\u00f0 skr\u00e1\u00f0a \u00feyngd, \u00feannig dugar t.d. Patrol og Land Cruiser a\u00f0 vera \u00e1 38&#8243; dekkjum)<br \/>\nB\u00edll yfir 2600 kg\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0 \u00fearf\u00a0\u00a0\u00a0 44&#8243; dekk<br \/>\nB\u00edll 2200 &#8211; 2600 kg\u00a0 \u00fearf\u00a0\u00a0\u00a0 38&#8243; dekk<br \/>\nB\u00edll 1500 &#8211; 2200 kg\u00a0\u00a0 \u00fearf\u00a0\u00a0\u00a0 36&#8243; dekk<br \/>\nB\u00edll undir 1500 kg\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0 \u00fearf\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0 35&#8243; dekk<br \/>\nEinnig ver\u00f0a a\u00f0 vera \u00ed hverjum b\u00edl talst\u00f6\u00f0 og 230 l\u00edtar af eldsneyti.<br \/>\nGistigj\u00f6ld \u00ed sk\u00e1lum munu vera 1600 kr\u00f3nur fyrir utanf\u00e9lagsmenn, en 1300 kr\u00f3nur fyrir f\u00e9laga \u00ed Fer\u00f0af\u00e9lginu\/J\u00d6RFI.<br \/>\nN\u00e1nari uppl\u00fdsingar veitir Sigurkarl A\u00f0alsteinsson, GSM 8920083, VS 4627233 e\u00f0a 4612726.<\/p>\n<p><strong>Vatnaj\u00f6kulsfer\u00f0 fresta\u00f0<\/strong><br \/>\nVegna vondrar ve\u00f0ursp\u00e1r um helgina hefur veri\u00f0 \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 fresta Vatnaj\u00f6kulsfer\u00f0inni um m\u00e1nu\u00f0, \u00fe.e. til 10. &#8211; 12. okt\u00f3ber. Fer\u00f0a\u00e1\u00e6tlun er a\u00f0 a\u00f0 \u00f6\u00f0ru leiti \u00f3breytt.<br \/>\nM\u00e6ting \u00e1 f\u00f6studag er kl. 19:00 \u00e1 Leirunni. Brottf\u00f6r kl. 19:30. Fari\u00f0 ver\u00f0ur \u00ed Laugafell og gist.<br \/>\n\u00c1 laugardeginum ver\u00f0ur fari\u00f0 um Vonarskar\u00f0, upp K\u00f6ldukv\u00edslarj\u00f6kul og gist \u00e1 Gr\u00edmsfjalli.<br \/>\nSunnudagurinn ver\u00f0ur nota\u00f0ur til heimfer\u00f0ar og valin ver\u00f0ur lei\u00f0 a\u00f0 einhverju leiti eftir ve\u00f0ri og skyggni en sennilegast a\u00f0 komi\u00f0 ver\u00f0i ni\u00f0ur anna\u00f0 hvort vi\u00f0 Kistufell e\u00f0a Sn\u00e6fell.<\/p>\n<p>Farin var vinnufer\u00f0 helgina 20. &#8211; 21. september. Gengi\u00f0 var betur fr\u00e1 b\u00e1\u00f0um endum \u00e1 vatnslei\u00f0slunni og gir\u00f0ingin ger\u00f0 kl\u00e1r fyrir veturinn.<br \/>\nVegna ve\u00f0urs var h\u00e6tt vi\u00f0 a\u00f0 fara inn \u00e1 Fj\u00f3r\u00f0ungs\u00f6ldu og h\u00e6kka endurvarpann. \u00dea\u00f0 b\u00ed\u00f0ur betri t\u00edma eins og a\u00f0 fara me\u00f0 ol\u00edu \u00e1 h\u00fasi\u00f0.<\/p>\n<p>Sveitarstj\u00f3rn \u00deingeyjarsveitar lag\u00f0i f\u00e9 \u00ed vegab\u00e6tur \u00e1 lei\u00f0inni fr\u00e1 St\u00f3rutungu inn a\u00f0 R\u00e9ttartorfu n\u00fa \u00ed haust. B\u00e6ndur \u00f3ku efni \u00far Flj\u00f3tinu \u00ed veginn \u00fear sem verst var og mun hann hafa teki\u00f0 nokkrum framf\u00f6rum vi\u00f0 \u00fea\u00f0. Ekki er \u00fe\u00f3 um neina hra\u00f0braut a\u00f0 r\u00e6\u00f0a, enda peningarnir ekki miklir sem unni\u00f0 var fyrir.<br \/>\nPS. Starfsmenn Sandbl\u00e1stursins f\u00f3ru inn \u00e1 R\u00e9ttartorfu \u00feann 3. okt\u00f3ber og segja a\u00f0 &#8222;f\u00e6r\u00f0in&#8220; \u00e1 St\u00f3rutungulei\u00f0inni hafi batna\u00f0 miki\u00f0 vi\u00f0 \u00feessar a\u00f0ger\u00f0ir. Vatni\u00f0 var l\u00edka \u00ed g\u00f3\u00f0u lagi svo ekki f\u00f3r \u00fea\u00f0 eftir fyrstu frostn\u00f3ttina, eins og sumir \u00f3ttu\u00f0ust.<\/p>\n<p><strong>Vinnufer\u00f0 18. &#8211; 19. okt\u00f3ber.<\/strong><br \/>\nStefnt er a\u00f0 vinnufer\u00f0 inn \u00e1 R\u00e9ttartorfu 18. okt\u00f3ber. Lagt ver\u00f0ur af sta\u00f0 fr\u00e1 Leirunni kl. 9:00. Fyllt ver\u00f0ur \u00e1 ol\u00edutankinn og sett upp \u00fatilj\u00f3s. Grilla\u00f0 um kv\u00f6ldi\u00f0 og fari\u00f0 heim \u00e1 sunnudag. N\u00e1nari uppl\u00fdsingar veitir El\u00edas \u00ed sk\u00e1lanefnd.<br \/>\nUngir vegfarendur \u00e6tla l\u00edka \u00e1 st\u00fafana \u00feessa helgi og hyggjast fara inn \u00e1 Fj\u00f3r\u00f0ungs\u00f6ldu til a\u00f0 h\u00e6kka endurvarpann.<\/p>\n<p><strong>Marsfundur.<\/strong><br \/>\n\u00c1 fundinum kynnti Halli Gulli n\u00fdja verslun fyrir jeppamenn, Kliptrom, sem hann er a\u00f0 fara af sta\u00f0 me\u00f0. K\u00e1ri \u00de\u00f3risson kynnti drifl\u00e6singu (Algrip) og skri\u00f0g\u00edr sem hann sm\u00ed\u00f0ar, en hvort tveggja ver\u00f0ur til s\u00f6lu hj\u00e1 Kliptrom. \u00c1 eftir s\u00fdndi G\u00edsli \u00d3lafsson myndir \u00far N\u00f3vemberfer\u00f0inni og fer\u00f0 sem hann f\u00f3r me\u00f0 H\u00fasav\u00edkurdeild \u00e1 gaml\u00e1rsdag.<br \/>\nEkkert var\u00f0 af \u00fev\u00ed a\u00f0 H\u00fasav\u00edkurdeildin bl\u00f3ta\u00f0i \u00deorra \u00e1 R\u00e9ttartorfu, heldur f\u00f3ru \u00feeir \u00ed sk\u00e1lann \u00e1 \u00deeistareykjum. Annars er \u00fea\u00f0 af f\u00e6r\u00f0inni inn \u00e1 R\u00e9ttartorfu a\u00f0 segja a\u00f0 f\u00e6rt er inn a\u00f0 Sand\u00e1, en h\u00fan er \u00f3f\u00e6r b\u00edlum og illf\u00e6r gangandi m\u00f6nnum.<\/p>\n<p><strong>Lifandi myndir.<\/strong><br \/>\nBj\u00f6rgunarsveitin S\u00falur stendur fyrir kvikmyndas\u00fdningu \u00ed N\u00fdja B\u00ed\u00f3i, \u00feri\u00f0judaginn 30. mars kl. 18:00 til 20:00. Mi\u00f0aver\u00f0 600 kr.<br \/>\nS\u00fdndar ver\u00f0a myndir fr\u00e1 hinni \u00e1rlegu kvikmyndah\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00ed Banff \u00ed Kanada, en h\u00fan er helsti vettvangur \u00feeirra sem gera \u00ed\u00fer\u00f3ttamyndir tengdar \u00fativist. \u00cd myndunum \u00ed \u00e1r er m.a. fjalla\u00f0 um sk\u00ed\u00f0i, snj\u00f3bretti, \u00edsklifur, klifur og Kayak siglingar \u00ed \u00e1m svo eitthva\u00f0 s\u00e9 nefnt.<br \/>\nAuk erlendra mynda ver\u00f0ur ein \u00edslensk mynd \u00e1 dagskr\u00e1: Vatnaj\u00f6kulslei\u00f0angur 1977. H\u00e9r gefst t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 sj\u00e1 hvernig j\u00f6klafer\u00f0ir voru fyrir 27 \u00e1rum.<\/p>\n<p><strong><a name=\"1081891847\"><\/a>Apr\u00edlfundur<\/strong><a name=\"1081891847\"><\/a><br \/>\nEl\u00edas \u00deorsteinsson greindi fr\u00e1 \u00fev\u00ed, a\u00f0 b\u00fai\u00f0 v\u00e6ri a\u00f0 leggja teikningar a\u00f0 vi\u00f0byggingu vi\u00f0 R\u00e9ttartorfusk\u00e1lann inn til byggingarfulltr\u00faans \u00ed \u00deingeyjars\u00fdslu. Sta\u00f0festing \u00e1 sam\u00feykki haf\u00f0i ekki enn borist. Stefnt er a\u00f0 sm\u00ed\u00f0i \u00e1 vi\u00f0byggingunni \u00e1 Akureyri \u00ed ma\u00ed. Ver\u00f0ur h\u00fan anna\u00f0 hvort bygg\u00f0 \u00ed heilu lagi e\u00f0a sm\u00ed\u00f0a\u00f0ir ver\u00f0a flekar sem settir ver\u00f0a saman \u00e1 sta\u00f0num. Vinnufer\u00f0 til a\u00f0 tengja hana vi\u00f0 sk\u00e1lann, grafa fyrir rot\u00fer\u00f3 o.fl. ver\u00f0ur \u00ed j\u00fan\u00ed.<\/p>\n<p>Gestur fundarins var Gylfi M\u00e1r J\u00f3nsson fr\u00e1 s\u00edmanum og fr\u00e6ddi hann fundarmenn um NMT kerfi\u00f0. \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur \u00ed fullum rekstri a.m.k. til 2007, en \u00fe\u00e1 rennur rekstarleyfi S\u00edmans \u00e1 \u00fev\u00ed \u00fat. Enn hefur ekki veri\u00f0 tekin \u00e1kv\u00f6r\u00f0un um framhaldi\u00f0, en notendur eru n\u00fana r\u00famlega 20 \u00fe\u00fasund og ver\u00f0a ekki skildir eftir \u00e1n langdr\u00e6gs s\u00edmakerfis, sag\u00f0i Gylfi.<br \/>\nS\u00edminn er n\u00fa b\u00fainn a\u00f0 \u00fer\u00f3a m\u00f6guleika \u00e1 a\u00f0 nota NMT og gervihnattas\u00edma til gagnaflutninga, \u00fe.e. flutnings \u00e1 t\u00f6lvup\u00f3sti.<br \/>\nVer\u00f0 \u00e1 gervihnattas\u00edma, sem henta\u00f0i \u00ed jeppum, er n\u00fa um 170 \u00fe\u00fasund og m\u00edn\u00fatuver\u00f0i\u00f0 er um 100 kr. S\u00edmt\u00f6l um gervihnattas\u00edma eru \u00ed raun \u00fatlandas\u00edmt\u00f6l og \u00f3d\u00fdrari \u00ed m\u00f6rgum tilfellum en a\u00f0 tala heim \u00far GSM s\u00edma.<br \/>\nVeitingar \u00ed bo\u00f0i S\u00edmans voru eftir kynningu Gylfa og a\u00f0 lokum var liti\u00f0 \u00e1 myndband fr\u00e1 torf\u00e6rukeppni \u00ed \u00c1stral\u00edu.<\/p>\n<p><strong>KT verslun b\u00fd\u00f0ur \u00ed opnunarh\u00e1t\u00ed\u00f0<\/strong><a name=\"1081892177\"><\/a><br \/>\nHalld\u00f3r G. Hauksson er a\u00f0 fara af sta\u00f0 me\u00f0 n\u00fdja b\u00fa\u00f0 me\u00f0 jeppa- og \u00fativistarv\u00f6rum. Hann sendir f\u00e9l\u00f6gum \u00ed 4&#215;4 eftirfarandi bo\u00f0sbr\u00e9f:<br \/>\n\u00d6llum f\u00e9l\u00f6gum \u00ed Eyjafjar\u00f0ardeild 4&#215;4 er bo\u00f0i\u00f0 \u00ed veislu, hj\u00e1 KT verslun, \u00ed tilefni af opnun fyrstu alv\u00f6ru jeppab\u00fa\u00f0arinnar \u00e1 Nor\u00f0urlandi.<br \/>\nHerlegheitin ver\u00f0a a\u00f0 Njar\u00f0arnesi 2, f\u00f6studaginn 16.april kl.19:00-21:00 og ver\u00f0ur bo\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 mj\u00f6g l\u00e9ttar veitingar.<br \/>\nTaki\u00f0 me\u00f0 jeppas\u00f6gur og sl\u00fa\u00f0ur og l\u00e1ti\u00f0 konurnar keyra.<br \/>\nKT verslun<\/p>\n<p>Halld\u00f3r G. Hauksson<\/p>\n<p><strong>Fj\u00f6lskyldudagurinn.<\/strong><br \/>\nErfi\u00f0lega gekk a\u00f0 f\u00e1 ve\u00f0ur til a\u00f0 halda fj\u00f6lskyldudaginn og var allur snj\u00f3r farinn, e\u00f0a \u00f3f\u00e6rt \u00ed hann vegna aurblautu, \u00feegar loks vi\u00f0ra\u00f0i. Brug\u00f0i\u00f0 var \u00e1 \u00fea\u00f0 r\u00e1\u00f0 a\u00f0 fara \u00fat \u00ed H\u00f6f\u00f0ahverfi og f\u00e1 far me\u00f0 Kaldbaksfer\u00f0um upp \u00e1 Kaldbak. S\u00ed\u00f0an var grilla\u00f0 \u00ed gili Grenj\u00e1r og s\u00ed\u00f0an f\u00f3ru menn ni\u00f0ur me\u00f0 \u00fdmsum h\u00e6tti. H\u00e9r fylgir mynd af Kaldbak, sem Adam \u00d3skarsson t\u00f3k \u00ed fer\u00f0inni.<\/p>\n<p><img decoding=\"async\" src=\"\/myndir\/jd2004.jpg\" alt=\"\" \/><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Vinnufer\u00f0 30. &#8211; 31. ma\u00ed. Vinnufer\u00f0ir \u00e1 vegum sk\u00e1lanefndar og umhverfisnefndar voru farnar 30. &#8211; 31. ma\u00ed. Sk\u00e1lanefnd vann a\u00f0 hreingerningu \u00e1 h\u00fasinu og vi\u00f0ra\u00f0i d\u00fdnur, huga\u00f0i a\u00f0 vatnstanki og h\u00e6\u00f0arm\u00e6ldi vatnsb\u00f3li\u00f0. Vegna rigningar var ekki h\u00e6gt a\u00f0 bera \u00e1 pallana e\u00f0a utan \u00e1 h\u00fasin. Vi\u00f0arol\u00eda og penslar eru hins vegar til rei\u00f0u innfr\u00e1 og &hellip; <\/p>\n<p class=\"link-more\"><a href=\"https:\/\/ey4x4.net\/wp\/?page_id=119\" class=\"more-link\">Lesa \u00e1fram<span class=\"screen-reader-text\"> &#8222;2003-2004&#8220;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":21,"menu_order":0,"comment_status":"closed","ping_status":"open","template":"","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-119","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ey4x4.net\/wp\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/119","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ey4x4.net\/wp\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/ey4x4.net\/wp\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ey4x4.net\/wp\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ey4x4.net\/wp\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=119"}],"version-history":[{"count":11,"href":"https:\/\/ey4x4.net\/wp\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/119\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":122,"href":"https:\/\/ey4x4.net\/wp\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/119\/revisions\/122"}],"up":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ey4x4.net\/wp\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/21"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ey4x4.net\/wp\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=119"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}